Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Staðarreglur Hlíðavallar


  • Staðarreglur Hlíðavallar 2024

    1. Vallarmörk.

    Völlurinn er afmarkaður með girðingum hvítum hælum og hvítum línum á jörðinni. En auk þess þá er innri kantur malbikaðs göngustígs meðfram 5., 8., 12., 13. og 16. braut vallarmörk, þar sem hvítar línur eru ekki til staðar.

    Á sumum brautum hafa hvítir hælar verið settir til að auðvelda leikmönnum að sjá úr fjarlægð hvar vallarmörk eru. Þessir hælar eru allir utan vallar, nema í kringum æfingarsvæði vallarins og áhaldahús, þ.e. vinstra megin við 11. braut, 18 braut og hluta af 10. braut en þar marka hælarnir völlinn.


    2. Vítasvæði.

    Öll vítasvæði vallarins eru merkt með rauðu og skulu lausnir frá þeim teknar skv. reglu 17. Mörk vítasvæðis er sláttulína, en þar sem slík sláttulína er ekki fyrir hendi þá er það rauð strik á jörðinni eða rauðir hælar. Leiki vafi á því hvoru megin sláttulínu bolti leikmanns sé, skal það túlkað leikmanninum í hag.

    Varðandi vítasvæðið næst vallarmörkum á 10 braut gildir að ef bolti leikmanns finnst innan vítasvæðis, eða þar er vitað eða nánast öruggt að boltinn hafi stöðvast þar eftir að hafa farið út af vellinum þaðan beint inn í vítasvæðið, má leikmaður gegn einu höggi í víti láta upphaflegaboltann eða annan bolta falla á gangstæðri hlið vítasvæðisins.

    3. Hindranir

    Bönd og staurar/hælar sem notaðir eru á vellinum til að stýra umferð, jarðfastir steinar á almenna svæðinu, þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar, fjarlægðarmerkingar/-hælar og gervigras á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir og skal taka lausn frá þeim skv. reglu 16.1. Rauðir og bláir hælar eru hreyfanlegar hindranir en þá skal setja aftur á sinn stað séu þeir fjarlægðir á meðan högg er leikið.

    4. Bætt lega

    Þegar bolti leikmanns liggur innan almenna svæðisins og þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en högg er slegið með því að leggja upphaflega boltann eða annan bolta innan einnar kylfulengdar frá þeim stað sem hann stöðvaðist upphaflega á.

    Víti fyrir brot á staðarreglu: Almennt víti.

Tímabundnar staðarreglur Hlíðavallar

Gildir frá 1.maí 2024 og þar til nánar verður ákveðið.


1. Rask eftir framkvæmdir

Samskeyti nýlagðs torfs á vellinum eru óeðlilegar vallaraðstæður skv. reglu 16 og fær leikmaður vítalausa lausn frá samskeytunum ef bolti hans liggur á þeim eða samskeytin trufla sveiflusvið hans. Hins vegar fær leikmaður ekki lausn frá samskeytunum ef eina truflunin er að leikmaður þurfi að standa á samskeytunum við leik bolta síns.

Drenrásir á 16. braut eru óeðlilegar vallaraðstæður skv. reglu 16 og skal taka vítalaus lausn frá þeim í samræmi við þá reglu.








Víti fyrir brot á staðarreglu: Almennt víti (Höggleikur - tvö högg, Holukeppni – holutap)

Að öðru leyti skal leika eftir reglum “Rules of golf as approved by R&A Rules Limited and The United states Golf Association”