Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Hlín Hlöðversdóttir nýr starfsmaður Golfklúbbs Mosfellsbæjar

18.01.2022
Hlín Hlöðversdóttir nýr starfsmaður Golfklúbbs Mosfellsbæjar

Hlín Hlöðversdóttir hefur verið ráðin á skrifstofu GM. Hlín hefur hafið störf í hlutastarfi en kemur svo inn í fullt starf í mars. Með tilkomu Hlínar mun þjónusta við félagsmenn eflast til muna.

Hlín hefur verið meðlimur í GM í fjöldamörg ár og þekkir því vel til starfsins okkar. Hún mun sjá um bókhald klúbbsins ásamt því að vera til staðar fyrir okkar félaga á skrifstofu klúbbsins.

Bjóðum við Hlín velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.