11.12.2017
Arna Rún Kristjánsdótti samdi á dögunum við háskóla í bandaríska háskólagolfinu en hún gengur til liðs við Grand Valley State University haustið 2018.
Arna Rún útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands núna í vor og heldur til Bandaríkjanna seinni part ágústs mánaðar.
Þetta er frábært tækifæri fyrir Örnu Rún til þess að æfa golfið við bestu mögulega aðstæður og sameina í leiðinni golf og nám. Við óskum Örnu innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með henni!