Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Gjaldskrá

Félagsgjöld 2024 *

Golflúbbur Mosfellsbæjar býður upp á þrjár mismunandi leiðir í félagsaðild. Þær fela allar í sér aðild að GM og þá heimild til þátttöku í öllum innanfélagsmótum ásamt skráningu inn á golf.is / golfbox. Leiðirnar eru hinsvegar mismunandi hvað varðar leikheimildir á vallarsvæðum GM.

Smelltu hér til þess að komast inn á skráningarsíðu Sportabler Sportabler - innskráning


* Boltar á útiæfingasvæði á Hlíðavelli að andvirði 29.900 kr eru innifaldir í félagsgjöldum. Í aukaaðild eru 1.500 boltar innifaldir í árgjaldinu.

Félagsaðild með fullri leikheimild 155.000 kr Heimild til að leika á báðum vallarsvæðum GM
Félagsaðild með hálfri leikheimild 111.000 kr Heimild til leiks í Bakkakoti

69 ára og eldri (Full leikheimild)** 118.000 kr Heimild til að leika á báðum vallarsvæðum GM
69 ára og eldri (Hálf leikheimild)** 85.000 kr Heimild til leiks í Bakkakoti
Ungmenni 12 ára og yngri** 28.000 kr Heimild til leiks á báðum vallarsvæðum GM
Ungmenni 13 - 20 ára** 36.000 kr Heimild til leiks á báðum vallarsvæðum GM
Ungmenni 21 - 29 ára** 80.000 kr Heimild til leiks á báðum vallarsvæðum GM

Aukaaðild - verð 50.000 krónur. 1.500 boltar á æfingasvæðinu á Hlíðavelli innifaldir í verði.

Þessi aðild gildir eingöngu í Bakkakoti, fyrir kl. 14:00 á virkum dögum og eftir kl. 14:00 um helgar. Veitir 50% afslátt af vallargjöldum á Hlíðavelli á virkum dögum fyrir kl. 12:00.

Greiðsluseðlar/krafa er send til félaga í desember. Þeir sem þess óska geta greitt árgjöld sín með greiðslukorti og/eða greiðsluseðlum geta dreift greiðslum á 2 – 10 skipti og er það gert í gegnum sportabler. Síðasta greiðsla fer fram eigi síðar en 31. október. Athugið að 2% álag kemur ofan á árgjöld sem greidd eru með kreditkorti og bankakostnaður er 390 krónur sem leggst á hvern greiðsluseðil sem sendur er í banka.


Nýliðagjald fyrir maka GM félaga. 50% afsláttur af fullu árgjaldi, 75.500 krónur. Veitir heimild til að leika á báðum vallarsvæðum GM. ( Nýliðagjaldið gildir bara á fyrsta ári og má viðkomandi ekki hafa verið í golfklúbb áður)

** Miðað er við fæðingarár.

Þeir sem vilja nýta sér afslætti vegna örorku, skulu nefna það við inngöngu í klúbbinn og framvísa staðfestingu til klúbbsins vegna þessa frá Tryggingastofnun Íslands. Aldursmörk miðast annars við fæðingarár og árið 2023. Mælst er til að byrjendur í golfi sem ekki hafa fengið skráða forgjöf fari á nýliðanámskeið hjá golfkennara.


Ef félagsmaður slasast eða veikist eftir að golftímabilið hefst endurgreiðir Golfklúbbur Mosfellsbæjar félagsgjöld sbr. neðangreint:

Berist tilkynning fyrir 1. júní = 75% endurgreiðsla

Berist tilkynning fyrir 1. júlí = 50% endurgreiðsla
Berist tilkynning fyrir 15. ágúst = 25% endurgreiðsla
Berist tilkynning eftir 15. ágúst ár hvert er engin endurgreiðsla á félagsgjöldum

Einnig er hægt að fá að flytja árgjaldið yfir á árgjald næsta árs.


Ákveði félagsmaður að segja sig úr klúbbnum skal úrsögn berast skrifstofu klúbbsins fyrir 28 febrúar ár hvert. Berist úrsögn eftir þann tíma fást félagsgjöld ekki endurgreidd nema gegn framvísun læknisvottorðs.


Fjölskyldugjald

Þegar að báðir foreldrar barna 18 ára og yngri eru meðlimir í GM þá þurfa þeirra börn ekki að borga neitt árgjald. Þetta á einnig við einstæða foreldra sem eru einu fyrirvinnur heimilisins.


Vallargjöld - Hlíðavöllur (2024)

Vallargjald 13.500 kr
Vallargjald GSÍ félagar 9.500 kr
Vallargjald með GM félaga fyrir kl 14 á virkum dögum og eftir kl 14 um helgar (hámark 3 gestir) 6.000 kr
Börn undir 18 ára 4.000 kr


Vallargjöld - Bakkakot (2024)

9 holur 4.300 kr
18 holur 6.500 kr
Auka 9 holur 2.300 kr
9 holur með GM félaga fyrir klukkan 14 á virkum dögum og eftir kl 14 um helgar (hámark 3 gestir) 3.000 kr
18 holur með GM félaga fyrir klukkan 14 á virkum dögum og eftir kl 14 um helgar (hámark 3 gestir) 4.000 kr
Börn undir 18 ára

Þeir kylfingar sem eru meðlimir í hálfri aðild - hafa heimild til þess að leika Hlíðavöll fyrir 50% af vallargjaldi og greiða því 4.750 kr.

Vinsamlegast athugið að vinavallagjald gildir aðeins þegar kylfingur leikur golf á eigin vegum á okkar völlum en ekki ef kylfingur
er hluti af hóp sem nýtur sérstaks afsláttar af vallargjaldi sem heild. Vinavallaréttur og afsláttur hans felst í því að viðkomandi
skrái sig sjálfur/ir í rástíma skv. bókun á GolfBox. Kylfingur hefur 2 daga heimild til skráningar fyrir leikdag eða minna.
2.000 kr




Æfingasvæði Hlíðavallar (2024)

1 boltakarfa 400 kr
Árskort 32.900 kr


Golfbílar (2024)

Golfbíll - 1 hringur 7.000 kr
Golfbíll - 5 hringja klippikort 28.000 kr
Golfbíll - Sumarkort 88.000 kr
Golfbíll - Hjónasumarkort 107.900 kr


Búnaður (2024)

Golfsett 6.000 kr (Hlíðavöllur) 3.000 kr (Bakkakot - 9 holur)
Golfkerra 2.000 kr
Rafmagnsgolfkerra 4.000 kr. (Eingöngu á Hlíðavelli)
Golfbíll 7.000 kr