Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Kvennastarf


Hjá GM er öflugt kvennastarf og hvetjum við allar konur til að taka þátt í því. Flesta þriðjudaga sumarsins spilum við saman, ýmist í Bakkakoti eða á Hlíðavelli. Rástímarnir eru á milli klukkan 17 og 18.

Sú nýjung verður tekin upp í ár að klúbburinn veitir verðlaun til þeirrar konu sem spilar með flestum í þriðjudagsgolfinu. Því hvetjum við ykkur til að rótera spilafélögum og kynnast þannig sem flestum konum í klúbbnum.

Við erum með fuglatré á báðum stöðum og hvetjum ykkur til að skrá fuglana ykkar á þau, í haust krýnum við svo fugladrottningu, fuglaprinsessu og fuglagreifynju og einnig drögum við vinningshafa úr öllum fuglunum.

Við verðum í mjög góðu samstarfi við Blik en gaman er að setjast saman sem oftast eftir hring á báðum völlum.

Hér fyrir neðan eru drög að dagskrá sumarsins. Athugið að viðbúið er að einhverjir viðburðir færist til en við munum alltaf auglýsa hvern viðburð á Facebook síðunni okkar, GM konur, tímanlega.

Munið að taka frá laugardaginn 2. september fyrir haustferðina okkar frábæru.



GM konur - sumarið 2023 - Dagskrá


16. maí Bakkakot - spil

23. maí Hlíðavöllur - spil

30. maí Bakkakot - gulur bolti



7. júní - Bakkakot spil

13. júní vinkvennamót á Akranesi

20. júní vinkvennamót á Hlíðavelli

27. júní - Bakkakot - spil


4. júlí MEISTARAMÓT GM

11. júlí - Bakkakot - spil texas, pilsa og hattamót.

18. júlí Hlíðavöllur - spil

25. júlí Bakkakot - spottaleikur


1. ágúst - Bakkakot - spil

8. ágúst Bakkakot - Rauðhetta

15. ágúst Hlíðavöllur - spil

22. ágúst Bakkakot - spil

29. ágúst Bakkakot - spil


2. september Haustferð GM kvenna - Hamarsvöllur í Borgarnesi

Verðlaunaafhending og matur á Blik


Bestu kveðjur,

Bára Einarsdóttir

Björk Jóhannsdóttir

Kolbrún Ýr Árnadóttir

Rakel Ýr Guðmundsdóttir

Kvennanefnd GM