Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

VITAgolf miðvikudagsmótaröðin fer af stað

01.06.2021
VITAgolf miðvikudagsmótaröðin fer af stað

VITAgolf mótaröðin 2021 fer af stað þann 9. júní.

Allir félagar í GM hafa þátttökurétt og er fyrirkomulagið þannig að hægt er að spila í mótaröðinni alla miðvikudaga í sumar til loka septembers, ( að einum miðvikudegi undanskildum, 30. júní ). Leikið er á Hlíðavelli. Kylfingar tilkynna sig til leiks í golfbúðinni hjá okkur og greiða þáttökugjald sem er aðeins 1.000 krónur per hring. Það eru svo sex bestu hringir sumarsins sem telja hjá viðkomandi kylfing. Það þarf því að spila að lágmarki 6 miðvikudaga til þess að vera gjaldgeng/ur í mótið.

Keppt er í tveimur flokkum í punktakeppni, flokki karla og flokki kvenna og er hámarksforgjöf gefin 36 í báðum flokkum.

Verðlaunin í VITAgolf mótaröðinni eru stórglæsilegt, þeir kylfingar sem spila best í hvorum flokki fyrir sig fá sæti í vorferð GM sem farin verður næsta vor.