Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Rástímabókanir breytast mánudaginn 7. september

02.09.2020
Rástímabókanir breytast mánudaginn 7. september

Nú er haustið farið að láta sjá sig en vellirnir okkar eru ennþá í toppstandi og vonandi verður hægt að spila golf á sumarflötum talsvert lengur :)

Þar sem það er farið að dimma snemma á kvöldin ætlum við að breyta bókunarkerfinu okkar á rástímum frá og með mánudeginum 7. september til þess að koma til móts við okkar félaga þannig að sem flestir komast í golf.

Fyrsta breytingin er sú og hefur hún nú þegar tekið gildi er að þeir kylfingar sem eru ekki í GM geta einungis bókað sig með eins dags fyrirvara.

Stærsta breytingin verður þó sú að hægt verður að bóka sig á 9 holur og þá bæði á 1. og 10. teig, seinnipart dags.

Dagarnir/rástímaskráning verða því settir svona upp:

Hlíðavöllur haustrástímaskráning - Hlíðavöllur 18 holur 08:00 - 13:50. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma þurfa ekki að bóka sérstaklega seinni 9 holurnar vilji þeir halda áfram.

Hlíðavöllur fyrri 9. 14:00 -20:00. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma og vilja spila 18 holur þurfa þá að bóka sig á rástíma á 10. teig (Hlíðavöllur seinni 9. 16:10 - 20:00) til þess að spila seinni 9.

Hlíðavöllur seinni 9. 16:10 -20:00.

Er það okkar von að þetta verði til þess að enn fleiri GM félagar geti notið þess að spila golf á Hlíðavelli nú á haustmánuðum.

Rástímabókanir í Bakkakoti haldast óbreyttar.