Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Pallaopen - styrktarmót

15.05.2021
Pallaopen - styrktarmót

Pallaopen - Styrktarmót fyrir Hlaðgerðarkot og sumarbúðirnar í Reykjadal!

Nýtt og stórskemmtilegt fyrirkomulag - þú getur valið um þrjár mismunandi leiðir til þess að keppa í þessu skemmtilega golfmóti :)

Pallaopen verður haldið á Hlíðavelli laugardaginn 22. maí. Mótið er til styrktar Hlaðgerðarkoti og sumarbúðuna í Reykjadal og rennur allur aðgangseyrir óskiptur til málefnanna.

Mótinu er skipt upp í þrjá flokka og ættu því allir að finna sér eitthvað við hæfi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum.

Punktakeppni - verðlaun veitt fyrir efstu þrjú sætin

Höggleikur án forgjafar - verðlaun fyrir efsta sæti

Tveggja manna scramble - verðlaun fyrir efstu þrjú sætin

4ramanna scramble - verðlaun fyrir efstu þrjú sætin.

Einnig verða nándarverðlaun á öllum par þrjú holum vallarins og gildir það þvert á alla flokka.

Hámarskforgjöf sem gefin er í mótinu er 28 hjá konum og 24 hjá körlum.

Í tveggja manna scramble er forgjöf liðs fengin með því að deila með fjórum í heildarforgjöf.

Í 4ra manna scramble er forgjöf liðs fengin með því að deila með 8 í heildarforgjöf liðs.

Glæsileg verðlaun í boði Dineout sem er helsti styrktaraðili þessa glæsilega golfmóts. Í verðlaun eru m.a. gjafabréf á glæsilegum veitingastöðum ásamt ýmsu fleira. Einnig verður talsverður fjöldi vinninga dreginn úr skorkortum að leik loknum.

Skráning fer fram hér á golfboxinu. Golfbox bíður því miður ekki upp á það að skrá sig í rástíma í liðakeppnum sem þessum. Þegar að þið skráið ykkur til leiks í golfboxinu og gangið frá greiðslu mótsgjaldsins þá fáið þið upp þann möguleika að velja rástíma fyrri part dags eða seinni part dags. Einnig getið þið skrifað nákvæman tíma og við bókum ykkur þá í þann rástíma eða sem næst honum.

Vinsamlegast athugið að sami aðili getur skráð allt liðið sitt í mótið óski hann þess. Viðkomandi aðili þarf þá að greiða allt gjaldið og þið gerið það svo upp ykkar á milli :)

Með því að smella hér getið þið séð þá rástíma sem í boði eru!

ÍSAM mun vera með Demo dag þar sem þeir kynna það nýjasta frá Ping og Titleist og fer það fram á neðri hæðinni hjá okkur í Klett og úti á æfingasvæði.

Skráning fer fram hér

Ef ykkur vantar aðstoð við skráningu þá er hægt að hringja í 5666999.

Hlökkum til að sjá ykkur :)

Þátttökugjald fæst ekki endurgreitt.