Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Nýjar sóttvarnarreglur

15.04.2021
Nýjar sóttvarnarreglur

Nýjar sóttvarnarreglur hafa nú tekið gildi og höfum við því breytt þeim reglum sem í gildi voru í íþróttamiðstöðinni okkar og eru þær eftirfarandi:

Við höfum skipt neðri hæðinni okkar upp í þrjú sóttvarnarrými og biðjum við ykkur að fylgja settum reglum svo að þetta gangi nú allt vel hjá okkur.Við höfum skipt neðri hæðinni okkar upp í þrjú sóttvarnarsvæði og eru þau eftirfarandi:

1. Trackman golfhermir - lokað rými. Þar mega vera að hámarki fjórir aðilar. Ef þið treystið ykkur ekki til þess að halda ávallt tveggja metra reglunni þá er grímuskylda.

2. Trackman golfhermir - opið rými. Þar mega vera að hámarki fjórir aðilar. Ef þið treystið ykkur ekki til þess að halda ávallt tveggja metra reglunni þá er grímuskylda.

3. Æfingasalur. Þar mega vera að hámarki 15 manns í einu.

Það er sér salerni fyrir hvert svæði og eru þau vel merkt viðkomandi svæði.

Nánari útskýringar má svo finna á svæðinu sjálfu og biðjum við ykkur um að fylgja þeim til hins ítrasta.

Munum svo að þvo okkur og sótthreinsa þegar við mætum á svæðið og göngum vel og snyrtilega um og hugum að öllum sóttvarnarreglum.

Góða skemmtun :)