Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Bændaglíma GM 2021

06.09.2021
Bændaglíma GM 2021

Skemmtilegasta golfmót ársins, Bændaglima GM, fer fram laugardaginn 18. september á Hlíðavelli. Ræst verður út á öllum teigum klukkan 13:00 en mæting er í Klett klukkan 12:00. Aðeins 100 kylfingar komast í mótið og ljóst að völlurinn verður þétt setinn af glöðum GM kylfingum eins og undanfarin ár.

Skráning í mótið hefst á GolfBox miðvikudaginn 8. september klukkan 12:00.

Eins og undanfarin ár verður keppendum skipt upp í tvö lið, rauða og bláa liðið. Bændur fyrir Bændaglímu GM 2021 verða kynntir í fljótlega!

Leikfyrirkomulag
Keppendum í Bændaglímu GM er skipt upp í tvö lið. Leikin er holukeppni með texas scramble fyrirkomulagi þar sem tveir og tveir mætast. Leiknir eru 2 leikir á sitthvorum 9 holunum og fæst einn punktur fyrir hvorn leik. Takist kylfingum að vinna báða sína leiki bætist við aukapunktur. Sá bóndi vinnur sem hlýtur fleiri punkta.

Eftir að móti lýkur verður grillveisla og verðlaunaafhending í Kletti.

Skráning í mótið fer fram í golfboxinu.