Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

INNGÖNGUTILBOÐ Í GM

31.07.2017
INNGÖNGUTILBOÐ Í GM

Golfklúbbur Mosfellsbæjar býður nú nýja félagsmenn velkomna í GM með frábæru inngöngutilboði. Þeir sem skrá sig núna fá leikrétt út núverandi tímabili bæði á Hlíðavelli og í Bakkakoti. Þú verður félagsmaður GM strax!

Greiðsla félagsgjalds 2018 hefjast í janúar og þú getur greitt í allt að 12 greiðslum frá janúar til desember 2018.

  • Leikheimild samstundis
  • 12 jafnar greiðslur félagsgjalds á kreditkorti
  • Eða skipta í 3 eða 6 greiðslur í heimabanka
  • Byrjaðu strax að spila golf á Hlíðavelli og í Bakkakoti
  • Ný félagsaðstaða er risin við Hlíðavöll

Það eru margar góðar ástæður fyrir því að vera í GM. Við leggjum afar mikið upp úr innanfélagsmótum. Við höldum glæsilega holukeppni fyrir félagsmenn með flottum verðlaunum og VÍKINGdeildin er síðan liðakeppni fyrir félagsmenn. GM mótaröðin er lokuð mótaröð fyrir félagsmenn GM sem er í gangi allt sumarið. 66° listinn - Stigalista félagsmanna er síðan enn eitt atriðið í innanfélagsstarfinu sem er alveg einstakt en það er stigalisti fyrir hinn venjulega félagsmann í GM og hinn óvenjulega líka.


Skráðu þig í GM hérna!


Hjá GM er besta aðgengi að rástímum á höfuðborgarsvæðinu. Markmið okkar er að tryggja að GM félagar komist í golf með einföldum hætti. Golfklúbbur Mosfellsbæjar býr yfir tveimur ólíkum en afar skemmtilegum vallarsvæðum. Hlíðavöllur sem hefur verið í hraðri uppbyggingu er að komast í fremstu röð 18 holu valla landsins. Bakkakot er mjög gróðursæll völlur staðsettur í Mosfellsdals og býður upp á skemmtilegar 9 holur fjarri ys og þys borgarinnar . Við erum því með tvö vallarsvæði sem ekki loka ekki á sama tíma.

Núna er risin ný Íþróttamiðstöð við Hlíðavöll en hún hefur verið nefnd Klettur. Í henni verður að finna alla aðstöðu sem kylfingar þurfa á að halda og er alls um 1.200 m2.

Á neðri hæð verður fullkomin inniæfingaaðstaða. Efri hæð hússins var tekin í notkun í júní og hýsir alla aðstöðu fyrir kylfinga og gesti sem vilja sækja Hlíðavöll.

Taktu ákvörðun um að ganga til liðs við skemmtilegasta golfklúbb landsins - Golfklúbb Mosfellsbæjar. Við hlökkum til að sjá þig í golfi í Mosfellsbæ strax í sumar!


Skráðu þig í GM hérna!