16.09.2017
Í dag fór fram á Hlíðavelli FJ Open. Þó veður væri á köflum fremur rysjótt og vindar blésu voru það samt 137 manns sem tóku þátt í mótinu. Keppni var eðlilega hörð og jöfn og tókst mótssgestum að ná nokkuð góðu skori þrátt fyrir á köflum erfiðar aðstæður.
Í höggleik var það Magnús Lárusson sem kom, sá og sigraði en hann lék á frábæru skori eða -5. Í punktakeppni var það hinsvegar Edda Herbertsdóttir sem sigraði með 40 punkta og óskum við þeim innilega til hamingju.
Annars voru úrslit sem hér segir:
Höggleikur
- Magnús Lárusson, GJÓ, 67 högg ( -5 )
- Tómas Peter Broome Salmon, GJÓ, 73 högg ( +1 )
- Ingvar Andri Magnússon, GR, 74 högg ( +2 )
Punktakeppni
- Edda Herbertsdóttir, GM, 40 punktar
- Ásgeir Nikulás Ásgeirsson, GKG, 39p
- Bryndís Theódórsdóttir, GVG, 38p
Nándarverðlaun
- 3. braut - Magnús Lárusson, GJÓ, 1,03 m
- 7. braut - Sigurður Óli Guðnason, GV, 2,55 m
- 10. braut - Guðjón Ármann Guðjónsson, NK, 0,33 m
- 15. braut - Stefán Már Stefánsson, GR, 2,76 m
- 18. braut - Davíð Baldur Sigurðsson, GM, 1.31 m
Við þökkum öllum kylfingum kærlega fyrir komuna á Hlíðavöll í dag og ennfremur ÍSAM og FJ fyrir veittan stuðning. Sigurvegarar geta nálgast verðlaun sín í afgreiðslunni í Kletti ( golfskála GM ) frá 12.00 mánudaginn 18. september.