Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

SVERRIR VIÐ KEPPNI Í FLÓRÍDA

16.12.2017
SVERRIR VIÐ KEPPNI Í FLÓRÍDA

Sverrir Haraldsson, afrekskylfingur úr GM, hóf í dag keppni á Tour Championship mótinu á Premier Junior Golf Tour. Mótið er 36 holur og er leikið á Lake Buena Vista vellinum í Orlando.

Sverrir hóf leik klukkan 09:09 á staðartíma og hefur þegar þetta er skrifað lokið við 3 holur á fyrsta hring.

Við óskum Sverri góðs gengis í mótinu en hægt er að fylgjast með honum með því að smella hérna fyrir neðan.

Staðan