Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

KOMDU Í GOLF OG HORFÐU Á OPNA BRESKA MEÐ OKKUR

18.07.2017
KOMDU Í GOLF OG HORFÐU Á OPNA BRESKA MEÐ OKKUR

Sunnudaginn 23. júlí verður haldið innanfélagsmót hjá okkur á Hlíðavelli þar sem gestir og vinir GM eru einnig velkomnir. Mótið er höggleikur með forgjöf og ræst verður út frá 8.00-12.00. Mótsgjald einungis 1.500 kr. fyrir félagsmenn í GM en 3.900 fyrir gesti.

Verðlaun eru veitt fyrir efstu 3 sætin í höggleik m. forgjöf. Nándarverðlaun eru á öllum par 3 brautum. Við verðum einnig með tvo skemmtilega aukaleiki í gangi. Keppendur fá annars vegar að giska við ræsingu hver verður sigurvegari Opna breska þetta árið. Verður dregið út við verðlaunaafhendingu ef fleiri en einn giska rétt.

Kylfingar fá síðan einnig úthlutað einum keppanda á Opna breska. Skor þess keppenda á lokahringnum verður síðan lagt við skor m. fgj. kylfinga í mótinu og samantekið skor þeirra ræður síðan hver sigrar.

Á Blik Bistro & Grill verður svo auðvitað sunnudagsgrillhlaðborðið í gangi á 3.900 manninn. Á sunnudeginum hefst það tveimur klukkustundum fyrr en vanalega eða kl 16:00. í tilefni Opna breska verður sérréttur í boði á sunnudaginn, fyrir utan hið hefðbundna lamb, en það er auðvitað FISH AND CHIPS!

Opna breska Meistaramótið verður því vonandi á fullu þegar kylfingar koma inn og er það tilvalið að setjast niður í góðum félagsskap og fá sér Fish & Chips, grilllamb og meðlæti og horfa á bestu kylfinga heims spila stærsta golfmót ársins.

Skráningu lýkur laugardaginn 22. júlí kl. 18.00 en skráning er á golf.is

Mótsgjald fyrir félaga í GM: 1.500 kr.

Mótsgjald fyrir gesti: 3.900 kr.

Við styðjum íslenska kvennalandsliðið af heilum hug og hjarta og verðum við auðvitað líka með alla leiki landsliðsins í beinni hjá okkur. Leikjadagskrá er hér að neðan.

Ísland - Frakkland, 18. júlí kl 18:45
Ísland - Sviss, 22. júlí kl 16:00
Ísland - Austurríki, 26. júlí kl 18:45