17.08.2017
Golfkennari hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar
Golfklúbbur Mosfellsbæjar auglýsir eftir golfkennara til framtíðarstarfa. Golfkennari gegnir lykilhlutverki í starfi klúbbsins og kemur að þjálfun barna, unglinga, afrekskylfinga og almennra kylfinga hjá GM.
STARFSSVIÐ
- Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfþjálfun fyrir almenna kylfinga
- Þjálfun barna unglinga og afrekskylfinga
- Þjálfun almennra kylfinga
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
- Viðurkennt PGA golfkennaranám, PGA nemi eða annað sambærilegt nám.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
- Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjenda. Senda skal umsóknir á netfangið gunnar@golfmos.is merkt „Golfkennari GM“ fyrir 1. september 2017
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar í síma 661-9009 og á netfanginu gunnar@golfmos.is