27.11.2017
Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar rekstrarárið 2016 – 2017 verður haldinn miðvikudaginn 13. desember 2017 kl. 20.00 í hátíðarsal Golfklúbbs Mosfellsbæjar í Kletti.
Dagskrá aðalfundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins.
- Áritaðir reikningar kynntir.
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Rekstraráætlun komandi starfsárs kynnt.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Kosning stjórnar, formanns og tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Kosning aganefndar og kjörnefndar.
- Önnur mál.
Um hefðbundin aðalfundarstörf verður að ræða. Farið verður yfir rekstrarreikninga klúbbsins á starfsárinu 2016 - 2017 ásamt skýrslu stjórnar um starfsemi ársins. Ekki eru lagðar til neinar lagabreytingar að þessu sinni.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Mosfellsbær þriðjudaginn 27. nóvember 2017
Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar